Helga Ingibjörg

Keine fragen= keine antworten :)

15.02.2008 17:59:12 / helgai

nýtt blogg

jæja ætla að prufa www.helgai.blog.is þetta hefur ekki alveg verið að virka hjá mér, get aldrei sett inn myndir eða neitt :$ sjáum hvernig hin síðan gengur..

                      www.helgai.blog.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 14:43:25 / helgai

Gluggaveður..

Það er sko alvöru gluggaveður þessa dagana, -11 gráðu frost og sól, ágætt að vera inni að læra í flíspeysu ;) Skólinn er byrjaður alveg á fullu og í gær fórum við á fangelsismálastofnun sem var bara mjög gaman, Loftur er svo byrjaður að vinna og er svo heppinn að geta labbað í vinnuna (eða er það ég sem er heppin að hann getur það, því þá get ég haft bílinn ;)) hehe

Um síðustu helgi skelltum við okkur á Skagann til ömmu og afa í brjáluðu óveðri en það var mjög kósí að borða góðan mat og aðeins að spjalla, alltof sjaldan sem maður skellir sér þangað, þó það sé nú ekki svo langt.. :$

í kvöld er svo ''ættar'' þorrablót hjá Steina frænda (bróðir mömmu). Ég elska svoleiðis samkomur þar sem maður hittir marga af ættingjunum kannski einu sinni á ári.. en Loftur kemst því miður ekki með þar sem hann verður að vinna..

En ætlaði bara að setja smá update, best að halda áfram að læra.

                                 -- Helga Ingibjörg--


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 20:34:16 / helgai

jólafríið búið

jæja við í Háskóla Íslands og þingmennirnir erum þá búin með okkar jólafrí :) við Loftur höfðum það svakalega gott heima um jólin, stoppuðum í 3 vikur og náðum að gera helling, t.d heimsækja Jenný í æðuslegu íbúðina hennar, út að borða í Egilsbúð (búin að langa í langan tíma) og svo löbbuðum við stóra hringinn nokkuð oft ;)

Annars er bara gott að vera byrjuð í skólanum aftur, önnin legst bara vel í mig og svo er Loftur hættur flakkinu og er komin alveg suður til mín og hættur fyrir austan (búið að byggja álverið;) ;)

Tíminn er alveg ótrúlega fljótur að líða, það er komið árið 2008!! Árið 2007 var bara mjög fínt, byrjuðum árið heima á Neskaupstað, svo var það bara Reykjavík city og skólinn og alvaran, svo komu páskar og ég var með systur mínar í viku og við gerðum margt skemmtilegt ;) svo var komið vor og við keyrðum austur og vorum þar um sumarið þar sem ég var yfirflokkstjóri aftur hjá vinnuskólanum, mikið unnið það sumarið. Svo í ágúst var það Tyrkland þar sem við steiktumst í 2 vikur í um 40 gráðu hita, fórum svo til Grikklands á afmælinu mínu (frá Tyrklandi) fórum svo út að borða í Tyrklandi þar sem ég fékk geðveika afmælisköku frá Lofti ;) hún var svo góð að þjónninn reyndi að stela henni, eina við þessa ferð er að póstkortin eru ekki ennþá komin :$ hehe , koma líklegast ekki... en svo tók alvaran aftur við og skólinn átti allar mínar stundir, svo bara voru komin jól. Á jóladag vorum við svo búin að vera trúlofuð í ár, tíminn alveg flýgur áfram..

Í sumar ætlum við svo að vera í Reykjavík, það verður skrýtið að vera ekki á Neskaupstað.. :$ En við mætum að sjálfsögðu á Neistaflug! :haha: svo förum við í eitt brúðkaup í sumar og ég hlakka bara til..

En ætla að fara að horfa á tv  og fara svo snemma að sofa fyrst maður þarf að vakna fyrir 7, búin að sofa út síðan 23 des ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 21:57:42 / helgai

Síðasta úthaldið..

Æðislegt að geta sagt að Loftur er að vinna síðasta úthaldið sitt fyrir austan ;) sem þýðir að 20.des kemur hann suður og svo 22.des keyrum við austur og verðum þar í ca 3 vikur og svo ætlar hann að vinna í bænum eftir áramót og ég þarf þá ekki að vera að sakna hans öll kvöld... ;) Held við séum komin með nóg af fjar-sambandi í bili.. ;)

Síðasta helgi var æðisleg, föstudeginum eyddi ég reyndar í 10 klst heimapróf í almannatryggingum, fékk ekki eina pásu og var vel steikt kl 18:00 8| en held mér hafi gengið ágætlega, vona það allavega... En svo um 19:30 komu mamma, pabbi og stelpurnar (með KFC) ég var að deyja úr hungri. En þau komu ekki bara með KFC, heldur var mamma búin að baka fyrir frumburðinn, skinkuhorn, kryddbrauð, piparkökur, lakkrístoppa, kringlur og amma laumaði vanilluhringjum með ;)  Þau voru svo fram á mánudagsmorgun og við keyptum flestar jólagjafirnar og fórum í jólaboð á Skagann og morgunverðarhlaðborð niður til tengdó ;) Á mánudaginn fór ég svo í síðustu rannsóknina á bakinu (kostaði líka slatta :$) fór í myndatökur hjá Domus Medica og fékk svo niðurstöðurnar í dag, loksins! Get víst ekki byrjað í blakinu alveg strax aftur :cry: en jæja hef þá bara meiri tíma í skólabækurnar, eða hvað?

Næsta próf er svo Stjórnmálafræði, á þriðjudaginn.. ekki beint það skemmtilegasta :$ En ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar (meira að segja Lofts :haha:) þannig að ég hef engar afsakanir nema læra, læra, læra.... Get bara varla beðið, er sko 150 % jólabarn ;) elska þennan tíma..

En jæja áður en maður fer að verða eitthvað væmin er best að hlusta á nokkur jólalög og halda svo áfram að læra...

                       --- Helga Ingibjörg ---


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 11:31:04 / helgai

31 dagur í jólin, 28 í jólafrí

Ég get varla beðið eftir 21.des að labba útúr síðasta prófinu, ahh það er bara nice  ;) Þar sem það er ekki opið heima á þorláksmessu í klippingu varð ég að finna mér Nobbara í bænum og fattaði að Anna Kristín er að klippa rétt hjá mér ( í Borgartúni) þannig að ég skelli mér þangað áður en við Loftur keyrum af stað austur í sæluna ;)

Annars eru síðustu dagar búnir að vera hrikalega erfiðir, var búin að vera lasin í viku og svo á þriðjudaginn fór rifbeinið á mér á eitthvað flakk og klemmdi taug með tilheyrandi sársauka og ég hænuhausinn sem tek svo sjaldan verkjalyf varð hálf skrýtin af lyfunum sem doksinn lét mig fá, plús það hvað þetta er sterkt og ég ældi öllu :cry: Heppin að hafa tengdó á næstu hæð, því þau fóru með mig á slysó og gerðu allt sem þau gátu fyrir mig 8)

Annars er bara nóg að gera í skólanum, fyrsta próf eftir viku, heimapróf frá 8:00-18:00 og svo endalausar ritgerðir. Bara get varla beðið að komast austur, komast í frí :haha: Ætlum að reyna að kaupa jólagjafirnar um helgina og klára það frá..

En þar sem ég hef ekkert skemmtilegt að segja frá, læt ég þetta duga, adios

                             --- Helga Ingibjörg---


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 11:57:12 / helgai

Að búa í Reykjavík vs fjörðurinn fagri

Ég er alveg búin að komast að því hvað það er gott að búa á Neskaupstað ;) bara best í heimi.. Maður er 5 mín að fara út í búð, engin umferð, þekkir alla, þekkir nágranna þína, alltaf gott veður 8) og ekkert stress. Ég er kannski ekkert búin að búa svaka lengi í Rvk en við erum búin að búa á sama stað í 1 1/2 ár, jú foreldrar Lofts búa á neðri hæðinni, þekkjum fólkið fyrir neðan þau, en ég hef ekki hugmynd hvað fólkið í kjallaranum heitir og hef ekki einu sinni séð það :| mundi aldrei fara að labba yfir í næsta hús og fá lánaðann sykur, heima skoppar maður bara til Stebbu Frey og fáum það sem okkur vantar ;) svo er maður 20 mín að komast heim úr skólanum og sjúkrabílarnir væla allan sólarhringinn! Hljóma ekki bitur ;) æj það er ágætt að búa í Rvk, allt til alls. En það verður bara svo sjálfsagt, man þegar maður var yngri og var að fara suður og hlakkaði til í mánuð að fara út að borða og í kringluna, það var toppurinn! ;)

Annars skelltum við okkur austur í Október og vorum í 3 æðislega daga, æðislegt veður, mömmumatur og tertur og matarboð hjá ömmu ;) ótrúlega nice að komast aðeins úr rigningunni og stressinu hérna :S

Á miðvikudaginn fór svo Loftur austur  að vinna í næst síðasta sinn :haha: sem þýðir að ég á eftir að vera ein heima í 4 vikur, en þar sem það er brjálað að gera og jólin nálgast þá hef ég nú fulla trú á að þetta verði fljótt að líða ;)

Helena systir kemur svo eftir rúma viku (er að fara að keppa með meistaraflokk) hún er víst ekki litil lengur 8| en hún ætlar að vera hjá mér yfir helgina ;)

Svo þar sem flug er orðið ógeðslega dýrt þá ákváðum við bara að keyra austur um jólin í staðinn fyrir að borga 25 þúsund aðra leiðina, ætlum líka að stoppa í einhvern tíma ;) ég er búin í prófum 16:30 21.des, fer í klippingu hjá Önnu Kristínu 22.des kl 09:00 og svo brunum við í fjörðinn fagra!!

En ætla að fara að fá mér kiwi og skella mér í stjórnmálafræðitíma :|

                --- Helga Ingibjörg--- (sem fékk 8,8 í aðferðafræðiprófi) :o ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 19:27:57 / helgai

Prófin nálgast..

Ég sem er nýbyrjuð í skólanum en prófin nálgast strax, held það sé bara ágætt ;) Þessi önn er svakalega erfið, endalaus verkefni, fyrsta prófið var í dag og það var í aðferðafræði, held mér hafi bara gengið vel :haha:

Loftur fór að vinna fyrir rúmri viku en kom svo á föstudaginn og við fórum í stórafmæli hjá stóra bróður hans, það var sko geðveikt í alla staði, æðislegur matur og frábær skemmtun. Þau hjónin eru snillingar! ;) (Enda er hún frá Neskaupstað ;)) hehe En Loftur fór svo aftur austur morguninn eftir :( En 19.Desember er síðasti dagurinn hans þarna, en þá er búið að byggja þetta blessaða álver :D Ég er svo búin í prófum 21.des kl:16:30 og þá er það bara fjörðurinn fagri :haha: Ætlum svo að skella okkur austur um næstu helgi.. (26.okt)  Verður ágætt að komast aðeins úr stressinu hérna í borginni, umferðin er geðveik hérna stundum :$ óþólinmæðin alveg að fara með fólk.... :$

Um síðustu helgi fékk ég svo fullt af gestum frá Akranesi ,ömmu og co, 8 manns sátu í stofunni hjá okkur sem er með 2 sæta sófa ;) hehe gaman að fá gesti.

...Já svo er ég komin með myspace, get nú ekki verið bara með eina síðu.. ;) en ég ætla nú reyndar ekkert að blogga þar.. en slóðin er www.myspace.com/helga_ingibjorg ;)

En ætla að fara að horfa á simpson, --- Helga Ingibjörg ---


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 17:58:39 / helgai

Frábær helgi...

Um síðustu helgi gerðumst við menningarleg og skelltum okkur að sjá Gullfoss og Geysir, svaka flott. Versti matur reyndar sem við höfum smakkað lengi þar...

Þessi helgi byrjaði svo vel, en við skelltum okkur í Garðabæ til skólafélaga Lofts þar sem við borðuðum æðislegan mat og spjölluðum frameftir nóttu ;)

Í gær (Laugardag) fengum við  okkur svo göngu á Laugarveginum þar sem ég fann mér svaka flottann jakka sem ég hef varla farið úr síðan ;) Svo komu Malli og Sigrún í heimsókn og buðu okkur á Queen showið á Players um kvöldið þar sem Malli var á trommum, Jónsi var á föstudeginum og við dauðsáum eftir að hafa ekki farið þá því við erum búin að sjá þetta show með honum og Magni og Eiríkur Hauksson voru ekki nálægt því jafn góðir og Jónsi þó þeir hafi nú verið ágætir ;) Bandið allavega stóð fyrir sínu og tjúttaði fólk alveg eins og það ætti lífið að leysa... Við vorum  mætt um miðnætti og héldum að við værum snemma en þá hafði örugglega verið komin  rúta frá einhverri 50+ blokk ;) hihi meðalaldurinn var frekar hár og nokkrir karlar voru í Queen búningum og fíluðu sig greinilega mjög vel, enda ekki annað hægt þegar Nobbarar eru að spila ;) Við byrjuðum við sviðið en svo allt í einu vorum við komin nálægt útgangnum, troðningurinn var þvílíkur! Verst að ég gat ekki dáðst af Malla frænda á trommunum :haha:hehe Fórum frekar snemma heim...

Í dag uppgötvuðum við svo uppáhaldsbúðina okkar!! Það er EGG á smáratorgi, við þangað  þegar við eignumst íbúð ;) Geðveikt flott og ekkert jafn dýr og maður heldur.

svo er það bara lærdómur núna... jeijj, jeijj


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 22:41:12 / helgai

Jóla-auglýsingarnar byrjaðar..

.. Ekki seinna vænna! eða hvað? ég meina það er miður September, 3 mánuðir í jólin. Jæja, ég allavega hlakka til ;) Bíð spennt eftir að sjá próftöfluna, held að ég verði búin 21.des eins og venjulega.. en kemur allt í ljós, Lofur allavega fer í frí 19.Des. Ótrúlega skemmtilegur tími allavega, byrjar að snjóa og svo fer maður að hugsa um jólin, tíminn er svo fljótur að líða, alveg ótrúlegt!

Loftur kemur svo heim á morgun eftir hálfsmánaðar fjarveru, fær síðbúinn afmælispakka og aldrei að vita nema við kíkjum á Kebabhúsið og bíó eða eitthvað. Annars var ég að heyra að það ætti að sýna Jaws í Laugardagslauginni á laugardagskvöld, og að maður ætti að vera ofan í lauginni, úff veit ekki hvort ég leggi í svoleiðis vitleysu, hef ekki þorað að horfa á hana heima undir teppi!! 8|

Svo er ég alltaf að komast að því meira og meira að Heiða Elísabet litla systir mín er snillingur! hehe bjargar deginum að hringja í hana, hún hefur svör við öllu og mjög spes spurningar og biður alltaf að heilsa tengda-bróður sínum, haha (Lofti) ;)

Annars er ég nú ekki búin að afreka neitt mikið síðustu vikur, búin að læra og læra og læra... búin að afreka eina stjórnmálafræðiritgerð sem tók vel á taugarnar, og svo búin að borða niðri hjá tengdó, fínt að vita af einhverjum niðri á kvöldin þegar ''vonda veðrið'' byrjar :$ tala nú ekki um þar sem ég er nú oftast ein heima :( á Neskaupstað mundi Reykjavíkur veður samt ekki þykja neitt vont, hehe , málið er bara að við búum upp í risi og vindurinn lætur sko alveg í sér heyra.. Hlakka mjög til þegar álverið er tilbúið og Loftur verður meira heima, dáldið erfitt að vera svona langt í burtu svona lengi :$

En ætla að fara að sofa í hausinn á mér.. -- Helga Ingibjörg--

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 18:00:56 / helgai

menning

Á þessu ári fékk ég allt í einu þá hugmynd að mig langaði alveg svakalega að prufa að búa í útlöndum, ég hef oft farið til útlanda en aldrei verið lengur en 2-3 vikur, auðvitað er alltaf jafn gott að koma heim, en það er eitthvað við það að búa í framandi landi... ;)

Allavega eins og áður hefur komið fram vorum við Loftur í Tyrklandi fyrir stuttu og þó svo að við vorum á ''túrista'' stað þá upplifði maður þvílíka menningu, t.d sáum við nokkrum sinnum bíla keyra um og allir lágu á flautunni og svo aftast var bíll skreyttur og þar stóð 11-12 ára strákur, við héldum að  þetta væri eitthvað svipað og ferming hjá okkur en nei aldeilis ekki, þetta var vissulega litla stráknum til heiðurs en þetta var vegna þess að það var verið að umskera hann... 8| Þannig komst hann í fullorðins manna tölu!

Svo þegar maður borðaði niðrí bæ þá kom á ca 2 klst fresti svaka ''gaul'' en þá var það frá moskunni og verið að kalla á karlmenn til að koma og biðja, þetta var 5 sinnum á dag og var voða gaman að heyra þetta, uppáhalds kebab staðurinn okkar var við hliðina á einu svona bænahúsi...

Svo fannst okkur svaka skrýtið þegar við vorum að labba meðfram verslunarmiðstöð og einhver kall var alveg ólmur í að fá okkur inn, við ákváðum að kíkja, en þá var trúlofunarveisla og allir velkomnir.. ;) hehe ég hefði bara viljað hafa vini og fjölskyldu ef ég hefði átt þessa veislu ;)

Svo er náttúrulega viss menning við að versla þarna því allt er prúttað og það er ekkert svakalega skemmtilegt til lengdar, hehe Lofti fannst það allavega ekki :haha:

Þetta var æðisleg ferð í alla staði en ég er ekki jafn æst í að flytja eitthvað lengst í burtu alveg strax ;)

en ætla að fara að horfa á nágranna og svo Dr. Phil

                       --- Helga Ingibjörg---


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 21:06:15 / helgai

Komið haust

Já algjörg Reykjavíkur haust komið, rok og rigning...

En við erum semsagt komin heim frá Tyrklandi, vorum 6,5 tíma að fljúga heim.. Höfðum það ótrúlega nice þarna úti þótt hitinn hafi verið í kringum 40-42 gráður ;) versluðum alveg slatta og erum bara mjög sátt eftir þessa ferð, á afmælinu mínu fórum við svo til Grikklands (Rhodos) það var svaka gaman.. Versta við þessa ferð var að síminn minn virkaði ekki og það er eins og að vera handarlaus, fékk þess vegna engar afmæliskveðjur :$ vona bara að sem flestir hafi munað eftir mér hehe ;)

-- Helga I--


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 13:02:03 / helgai

Tyrkland

Hello, ta erum vıd buın ad vera a Tyrklandı ı 3 daga og vıd erum ad fyla tad mjog vel, hıtınn er um 42 C og tad er bara nıce, erum buın ad fara ı Tyrkneskt bad, tar sem vıd vorum skrubbud og nuddud ı 2 tıma :) a fostudagınn naesta a eg svo afmaelı og vıd aetulum ad skella okkur tıl Rhodos a Grıkklandı ;) Svo erum vıd buın ad versla hellıng, dıesel og puma ;) en aetla ad skella mer aftur ut ı solına, blogga meıra seınna... hılsen Helga Ingıbjorg

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 15:17:38 / helgai

5 dagar..

úff styttist og styttist :haha: Eftir 3 daga kemur minn heittelskaði heim og við brunum norður í bústað til m&p eina nótt og svo suður eina nótt og svo er það bara Tyrkland, sjæse hvað ég er spennt, eins og litlu börnin 17:59 á aðfangadag, hehe. Hlakkar líka óendanlega til að fara til Rhodos á afmælinu mínu þarna úti..

En nóg um það, í gær skelltum við Jenný og Drífa okkur á Reyðarfjörð city á kaffi Ilm og þar voru örugglega 200 pólverjar og amerikanar, frekar spes, frekar fyndið og ágæt upplifun ef við höfum það bara þannig, held samt að ég fari ekkert þangað aftur ;) Dáldið skondið hvað ég ''þekkti'' marga þarna úr vinnunni hjá Lofti, fólk sem ég hef séð á flugvellinum eða eitthvað og svo einhverjir sem ég hef hitt ;)

Svo í morgun var frekar erfitt að vakna 06:40 til að fara í bæjarhreinsun, bara búin að sofa í 2 tíma, bjargaði mér að ég var ennþá með bílinn hennar Jennýjar ;)

En jæja ætla að eyða nokkrum tímum í ritgerðarstúss og vera svo skemmtilegt barnabarn og gera marengs-desert og færa ömmu ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 12:06:38 / helgai

12 dagar í Tyrkland :)

Jæja kominn tími á nýtt blogg :) Tíminn er ekkert smá fljótur að líða hérna heima, ohh ég væri alveg til í að eiga heima hérna, það er svo kósí að hafa Heiðu systir með sínar pælingar og allt það ;)

En alveg ýmislegt sem hefur gerst síðan síðast, Neistaflug var auðvitað haldið hér um versló og heppnaðist það auðvitað alveg svaka vel, brekkusöngurinn var æði og böllin svakaleg, við fórum reyndar bara á eitt ball því að ég var að fá endajaxl og var eins og fílamaðurinn :( en það endaði strax eftir versló með því að ég þurfti að láta rífa hann úr og er svona að ná að jafna mig núna :)

Svo er Helena litla systir komin í landsliðið U-17 í blaki ;) skvísan er á 15.ári, en eins og ég sagði þá er tíminn alveg ótrúlega fljótur að líða...

Man ekki eftir neinu stórmerkilegu fleiru, dagarnir eru voða líkir, vinna og svo oftast á ísrúnt með Lofti ;) hihi spurning hvort maður passi í bikiníið þegar við förum út ;)

Það sem fer mest í taugarnar á mér þessa dagana er konan sem sér um veðurfréttirnar á stöð 2 þessa dagana, hún stendur ALLTAF fyrir austurlandi! :^)

En jæja ætla að fara að setja á draum húsbóndans , uppáhaldstertan þessa dagana :haha:

Endilega kvittið, --- Helga Ingibjörg---


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 21:02:15 / helgai

Geggjað veður..

Alltaf jafn æðislegt veður hér á Neskaupstað city, sólin er allavega farin að láta sjá sig eftir að hafa verið í 2 vikna fríi í Reykjavík og það vildi svo til að Loftur var akkúrat í fríi hér heima á meðan og sá því ekki sólina í þessu fríi :$ En við gerðum samt ýmislegt skemmtilegt, fórum t.d á ættarmót og skemmtum okkur konunglega, hittum fullt af sniðugu fólki ;) svo fórum við á Stykkishólm og skoðuðum hótelið sem Loftur vann á, fórum svo í sund og svo til baka á ættarmótið þar sem það var svaka matarveisla, lamb, hrefna og folald og æðisleg súkkulaði kaka :haha: . Á Sunnudeginum fórum við svo í bæinn og heimsóttum foreldra Lofts og þar beið okkar dýrindis marengsterta :P, svo fórum við í kringluna og smárann (auðvitað) og ég missti mig aðeins í nammilandi :o svo var toppurinn á ferðinni þegar við fórum á Kebab húsið mmm.... ;)

Svo í síðustu viku var bæjarvinnuferðalagið í vinnunni og það gekk bara nokkuð vel, fyrir utan kulda og rigningu um nóttina..

Gott að nefna að það eru bara 36 dagar í Tyrkland, kebab og sólbað, get ekki beðið!

Svo er versló bara eftir 2 vikur, tíminn er ekkert smá fljótur að líða hérna, enda mikið að gera, kem oftast ekki heim fyrr en um 19:00 (hlakka bara til að fá útborgað) ;)

en ætla að fara að henda mér í sófann :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12